Þegar maður sér svona fyrirsögn þá getur maður vart orða bundist.
"Karlmanni hefur verið bætt á lista kynferðisafbrotamanna í Bretlandi, eftir að sást til hans hafa kynmök við reiðhjól í hótelherbergi í Ayr í Skotlandi. Hótelstjórinn lagði fram kæru eftir að starfsmenn höfðu gengið inn á manninn, þar sem hann hafði gyrt niður um sig og hreyfði mjaðmirnar fram og aftur á hjólinu. Þetta er ekki fyrsta undarlega kynferðisbrotið á Bretlandi, en rafvirkinn Karl Watkins var fangelsaður fyrir að hafa haft kynmök við gangstéttir í bænum Redditch árið 1993."
Hvert stefnum við eiginlega?
Athugasemdir
Þú ert væntanlega að fjalla hér um "reiðhjólaníðing"!
Getur þetta verið tilefni til að gera húsleit hér í öðru hverju húsi hér á Íslandi vegna meintra "víbratora- og eggjaníðinga"?
Haukur Nikulásson, 30.10.2007 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.