Ég stal einu sinni gulrótum í garðinum hjá Adam nágranna mínum. Ég var 6 ára að mig minnir.Gleymi því aldrei. Löggan send heim og allt. Ég játaði þó aldrei en sökum mikillar sektarkenndar undanfarin ár geri ég það hér og nú. Fyrirgefðu Adam. Sem betur fer er málið fyrnt.
Handtekinn fyrir að hafa myrt eiginkonuna fyrir ellefu árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svona stórglæpamál fyrnast ekki Lúðvík.
Heimir (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 22:14
Þú ert svoleiðis í hrópandi mótsögn við sjálfan þig: "Ég var 6 ára að mig MINNIR. ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI."
Taktu þér tak drengur.
Doddi (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 20:39
Ég gleymi því aldrei þegar þetta gerðist, sauðurinn þinn!!! Man engan vegin hvað ég var gamall.
Lúðvík Gunnarsson, 9.5.2007 kl. 17:07
Langir fingur á langt...
Guðrún (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 19:25
Tennent's eftir rúma viku?
Doddi (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.